Fjallastígar Andalúsíu - Sierra Nevada og Alpujarras dalirnir

Fjallastígar Andalúsíu - Sierra Nevada og Alpujarras dalirnir

Fjallastígar Andalúsíu –
Sierra Nevada og Alpujarras dalirnir
23.- 30. maí með Steinunni Harðardóttur

Erfiðleikastuðull 2 fjöll

 

Sierra Nevada er hæsti fjallgarður Evrópu utan Alpanna. Sunnan hans eru Alpujarras dalirnir og síðan Miðjarðarhafið. Á þessu svæði var síðasta vígi Máranna sem lögðu undir sig stóran hluta Spánar á 8. öld. Þeir réðu að lokum aðeins nokkrum höfnum í grennd við Cadiz en misstu þær árið 1492. Í Alpujarras er menning Mára allstaðar áberandi; í byggingarlist, matargerð og allri mótun umhverfisins. Í dölunum eru stallaræktanir mjög algengar og þar hefur vatn verið leitt marga kílómetra til að nýta sem best þetta frjósama svæði. Menningin er blómleg, gróður og dýralíf fjölbreytt og fallegar og áhugaverðar gönguleiðir eftir gömlum þjóðleiðum. Göngu-Hrólfur býður í fyrsta sinn upp á spennandi gönguferð um Sierra Nevada eða Snjófjöllin og Alpujarras dalina. Leitast er við að kynna göngumönnum sem fjölbreyttastan hluta svæðisins. Gengið er í gegnum hina einstaklega fallegu Alpujarras dali, gegnum hvítkölkuð þorp og upp á fjallahryggi Nevada fjallanna. Fyrsti áfangastaðurinn er Capileira og sá síðasti Cadiar. Á frídegi gefst áhugasömum tækifæri til að fara til Granada og skoða Alhambrahöllina.

 

Dagur 1. Reykjavík-Alicante-Capileira (miðvikudagur)


Flogið frá Keflavík að morgni dags og lent í Alicante um kl. 14.00. Þaðan er um fjögurra-fimm tíma akstur á fyrsta áfangastaðinn Hotel Finca los llanos http://www.hotelfincalosllanos.com/ í bænum Capileira sem er í 1436 metra hæð. Það er verulegur hæðarmunur á milli gamla og nýja hluta þorpsins. Capileira er miðstöð þeirra sem hyggja á gönguferðir um hinar fjölmörgu gönguleiðir svæðisins og þá sérstaklega þá sem ætla að klífa Mulhacén(3,478.6m) hæsta fjall svæðisins og það hæsta á meginlandi Spánar.

Dagur 2.  Poqueragilið og þorpin í gilinu.

 


Efsti hluti Poqueira gilsins skerst inn í Mulhacén fjallið og því gnæfir tindurinn yfir göngufólkinu á leið niður gilið. Þarna er fjöldinn allur af spennandi gönguleiðum og einstakt útsýni. Leiðin liggur fyrst til Pampaniera sem er í 1060 metra hæð og síðan upp í 1350 m hæð til Bubion áður en haldið er til baka til Capileira. Í báðum þessum þorpum eru spennandi verslanir sem bjóða fjölbreytta framleiðslu héraðsins. Á leiðinni til baka er farið eftir GR 7 leiðinni sem liggur meðfram allri suður- og vesturströnd Spánar.
Gengið  5-6 tíma, hækkun 500 m lækkun 500 m

Dagur 3 Capileira – Mecina.


Haldið er frá hótelinu niður eftir Poqueira gilinu og þaðan til hins sérstæða og spennandi svæðis La Taha. Það samanstendur af sjö litlum einstaklega fallegum þorpum af arabískum uppruna. Svæðið er grænna og ávalara en efri hluti fjalllendisins og loftslagið mildara. Á leiðinni blasir við frábært útsýni til Sierra Nevada fjallanna sem eru að baki og yfir vínræktarsvæði og ekrur. Leiðin liggur gegnum fjölbreytt landslag áður en komið er til Mecina eins af þessum sjö þorpum. Gist er á hóteli De Mecina næstu tvær nætur.
5-6 tímar hækkun 300 m lækkun 300 m

Dagur 4. Þorpin á Taha svæðinu


Farin er einstaklega skemmtileg hringleið eftir gömlum asnaslóðum og silkileiðum um La Taha svæðið. La Taha þýðir sveitarfélag máranna. Márarnir reistu þessi þorp og menning þeirra er allstaðar mjög sýnileg. Húsin eru hvít með flötum þökum byggð í Berber stíl frá Marokkó. Sá stíll er í dag svo einkennandi fyrir svæðið að nýjar byggingar verða að fylgja sama arkitektúr. Leitast er við að stoppa í sem flestum af bæjunum sjö, skoða þá og setjast niður og fá sér hressingu áður en haldið er til þess næsta. Milli bæjanna eru gamlar leiðir sem hafa verið farnar gegnum aldirnar. Stærsti bærinn er Pitres með um 400 íbúa hinir eru einstaklega falleg lítil smáþorp .
Gengið um 4 tíma hækkun 250 m lækkun 250 m

Dagur 5. Siete Lagunas


Nú er hótelið yfirgefið og haldið tuttugu mínútna leið með rútu upp til hæsta bæjar svæðisins, Trevelez í 1486 m hæð. Þorpið er þekkt fyrir frábæra skinku og einstaklega fallegt umhverfi. Siete Lagunas er afskekktur jökulsorfinn dalur innrammaður af hæsta fjallinu Mulhacén 3478 m og því þriðja hæsta Alcazaba. Framundan er spennandi göngudagur eftir fjallahryggjum. Að hluta farið eftir leiðinni upp á  Mulhacén 3371m. Þetta er krefjandi en einstaklega spennandi ganga um ósnortin víðerni með einstöku og spennandi dýralífi. Gist á hótel La Fragua. http://www.hotellafragua.com/en_index.html
Gengið 7-8 tíma

Dagur 6. Frjáls dagur


Frjáls dagur. Hægt er að fara fallega gönguleið um lítt snortið land til Rio Culo Pero, taka það rólega í bænum eða fara til Granada og skoða Alhambra höllina. Ekki innifalið í ferðinni og verðið fer eftir því hve margir fara. Gera má ráð fyrir um 45 evrum á mann fyrir rútuferð og leiðsögn í Alhambrahöllinni.

Dagur 7. Gengið eftir fjallshrygg í 3000 metra hæð

 


Ekið er upp í 2650 metra og síðan gengið um Acequia Berchules og notið frábærs útsýnis til Mulhacén og Trevelez dalsins. Þá er haldið áfram eftir þröngum dal upp á fjallshrygginn sem er í 3000 metra hæð, síðan er haldið eftir öðrum fjallshrygg um Plaza de los Lobos og til baka að rútunni. Þetta er ógleymanleg ganga og miklar líkur á að rekast á hina einstöku fjallageit sem þarna heldur sig. Síðan er haldið á hið fallega hótel Alquiera de Morayma. http://www.alqueriamorayma.com/en/ 5-6 tímar
Annar möguleiki þennan dag er -Trevelez - Alquiera de Morayma
Einstaklega skemmtileg ganga frá Trevelez alla leiðina niður í Cadiar dalinn. Gengið er um þorpin Juviles, Timar og Lobras áður en komið er á hið fallega hótel Alquiera de Morayma.  19 km. 6-8 tímar. Hækkun 400 m lækkun 600 m

Dagur 8. Heimferð Alicante Reykjavík


Haldið snemma dags áleiðis til Alicante og síðan flogið til Keflavíkur-Reykjavíkur kl 15.00.

Fararstjóri:  Steinunn Harðardóttir og heimamaður
Innifalið: Flug, fararstjórn, gisting, flutningur og fullt fæði, þó ekki ferð til Granada og hádegisverður á 6. degi, né heldur ferðadagana.

 

Verð á mann miðað við 2 saman í herbergi .

224.500 + 15.000 vildarpunkta

*Verð án punkta

234.500

Aukagjald fyrir einbýli er 35.000

Eingöngu er hægt að nota punkta ef ferð er bókuð á netinu.

Innifalið:

Flug

skattar

gisting

fullt fæði

Íslensk fararstjórn

 

*Ekki innifalið : Ferð til Granada og hádegsverður á frjálsum degi ásamt komu og brottfaradegi.

 

 

 
 

Pakkar

Með skráningu í netklúbb VITA tryggir þú þér að vera með þeim fyrstu sem fá tilkynningar um nýjar ferðir, fréttir og tilboð.

Skráðu þig í netklúbb VITA
Fyrir marga er skemmtilegasta skeið ævinnar eftir sextugt. Ein helsta ástæða þess er að fáir aldurshópar hafa kost á því að ferðast jafnmikið, en ferðalög eru ein af forsendum þess að geta notið lífsins til fulls.
(+)nánar

Hópferðir

Ertu að skipuleggja hópferð? Smelltu hér

Icelandair Saga Club

Fáðu upplýsingar um hvernig þú getur notað Vildarpunktana þína.

Hrós og hugmyndir

Viltu senda okkur hrós eða ertu með einhverja hugmynd fyrir okkur?

Algengar spurningar

Fáðu svör við helstu spurningunum sem þú kannt að hafa og tengjast ferðalagi þínu með VITA.

Þú er hér:


Breyta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir



Þú getur notað Vildarpunktana hjá okkur
(+)nánar