Beint í leiðarkerfi vefsins.
Norðvestur Toscana er af mörgum talið eitt best varðveitta leyndarmál Ítalíu. Þetta afskekkta hérað býður upp á einstaklega fjölbreytta náttúrufegurð. Stórbrotin fjallasýn blasir hvarvetna við, auðug flóra skartar sínu fegursta og mannlífið byggir enn á gömlum hefðum. Það eru komin 12 ár síðan Göngu Hrólfur bauð upp á gönguferð á þennan spennandi stað. Þá var gist nokkra daga í fjallaskála í Apuan ölpunum. Nú bjóðum við nýja ferð á þessar slóðir. Lögð er áhersla að kynnast héraðinu og fólkinu sem best. Fyrstu tvær næturnar er gist á gistiheimili í gamalli myllu á bökkum Sercioárinnar. Þaðan er gengið upp í fallegan dal í Apuan ölpunum. Þá er gengið um fallega sveit upp í Orecchiella friðlandið. Þar skiptist á svipmikið og klettótt fjalllendi, laufskrúðug skóglendi, grösugar sléttur og ávalar hæðir. Mjög takmörkuð byggð er í garðinum en dýralíf og blómskrúð því fjölbreyttara. Gist verður þrjár nætur í fjallahóteli í bænum Corfino. Þaðan er gengið upp á bæjarfjallið Pania di Corfino og gamlar fjárhirðabyggðir heimsóttar. Farið verður á markað í bænum Castelnuovo og ekið um Garfagnanadalinn í gamalli lest. Síðasti gististaðurinn í ferðinni er bændabýli sem býður upp á góða gistingu í nokkrum litlum húsum.
Haldið snemma morguns frá Keflavík og lent á flugvellinum í Mílanó um 14.00. Ekið eins og leið liggur til þorpsins Camporgiano sem er í Garfagnanadalnum, hann er á milli Apuan Alpanna í suðri og Appenínafjallgarðsins í norðri. (4-5 tíma akstur) Þar er gist næstu tvær nætur í gistiheimilinu Mulino de Rancone sem er í gamalli myllu á bökkum Serchio árinnar. Eftir kvöldmat er hægt að fara í gönguferð um bæinn áður en lagst er til svefns. http://www.mulindelrancone.com/?pag=1
Fyrsta göngudaginn er haldið upp í Apuan alpana, það eru spennandi kalksteins- og marmarafjöll með mörgum frægum marmaranámum. Haldið er með rútu 15 km leið upp til Vagli de Sotto lítils þorps sem er á bökkum Vagli vatnsins. Þaðan er gengið upp í einstaklega fallegan dal sem myndaðist þegar jökull lá í miðjum hlíðum fjallanna. Þarna kúra lítil hús sem áður voru nýtt af fjárhirðum svæðisins. Breitt er úr dúk og útbúin girnilegur lautarverður úr mat sem hópurinn hefur borið með sér. Síðan er haldið niður úr dalnum um kastaníuskóg gegnum Roggio og Casatico, lítil og falleg þorp og heim til Camporgianao. Gengið um 6 tíma, hækkun og lækkun 300 metrar. Kvöldverður á gistiheimilinu. http://www.mulindelrancone.com/?pag=1
Í dag er Camporgiano yfirgefinn og haldið í norður hluta Garfagnanadalsins en farangurinn verður fluttur til næsta gististaðar. Haldið er gangandi í gegnum falleg sveitahéruð, innrömmuð af fjallatindum Apuan alpana. Leiðin liggur upp að hinum forna Verrucole kastala en hann stendur á hæð í miðjum dalnum. Þar undir kastalaveggjunum er gaman fræðast um sögu dalsins og breiða úr dúknum til lautarverðar. Frá kastalanum liggur gönguleið upp í Oreciella friðlandið og til Corfino. (860m) Af torgi bæjarins er frábært útsýni yfir Garfagnanadalinn. Á gistiheimilinu La Baita þar sem gist verður næstu þrjár nætur tekur hótelstjórinn Roberto á móti hópnum með léttum drykk. http://www.albergolabaita.com/index.html Gengið 6 tíma, lækkun 150m, hækkun 600m.
Hótelið La Baita er í útjaðri þjóðgarðsins Orecchiella og við rætur fjallsins Pania di Corfino, 1606 m. Gengið er frá hótelinu upp í fjallshlíðarnar eftir fornum stígum sem gerðir voru af fjárhirðum sem á vorin fluttu hjarðir sínar upp á fjallsengin. Þeir bjuggu síðan í fjárhirðaþorpinu Campaiana yfir sumarið og gættu hjarðarinnar. Þar á engjunum breiðum við úr dúknum og snæðum ljúffengan lautarverð. Eftir matinn er haldið til baka aðra leið framhjá hinum spennandi Fonte de Amor. Gengið um 6 tíma. Hækkun 600m, lækkun 600m.
Í dag er haldið frá La Baita að fjárhirðaseljunum í Pruno en þeim hefur nú verið breytt í sumarhús. Þarna undir vesturhlíðum Pania di Corfino í útjaðri Orecchiella friðlandsins virðast fjallshlíðarnar ókleifar. En í skriðunum leynist skemmtilegur sígur upp á fjallið sem við leitum uppi og höldum alla leið upp á topp 1606 m. Þaðan er einstakt útsýni yfir Garfagnadalinn og yfir til Apuan alpanna. Eftir ljúffengan lautarverð er haldið niður af fjallinu eftir þægilegum stíg sem er umvafinn björtum beykitrjám. Gengið 6 tíma, hækkun og lækkun 800m.
Það er komið að því að kveðja La Baita og halda með strætó niður til Castelnuovo sem er aðal verslunar- og viðskiptamiðstöð dalsins. Öld eftir öld komu bændur og iðnaðarmenn þangað með vörur sínar og afurðir og seldu á fimmtudagsmarkaðnum. Enn í dag eru allar götur og torg þakin ýmiskonar varningi á fimmtudögum og við notum tækifærið og sláumst í hópinn með heimamönnum. Í hádeginu gefst svo tækifæri til að bragða á framleiðslu héraðsins hjá Andrea sem rekur hinn sérstæða veitingastað Il Vecchio Mulino. (Gamla myllan). Eftir ljúffenga máltíð er haldið í gönguferð gegnum Castiglione di Garfagnana til Braccicorti þar sem gist er í bændagistingu næstu tvær nætur. Gengið 4 tíma, hækkun/lækkun: +300m; - 150m http://www.braccicorti.it/it/index3.php
Verkefni dagsins er að kanna stíga sem tengja saman tvo dali og fjölmörg smáþorp þar sem lífið gengur sinn vanagang við skógarhögg og marmaravinnslu. Frá Braccicorti er um 20 mínútna gangur til Villetta. Þaðan gengur lítil gömul lest sem þræðir fallega staði í dalnum. Við tökum okkur ferð með henni til Pieve San Lorenzo. Þaðan er gengið til Ugliancaldo-Equi Terme-og Monzone. Að göngu lokinni er haldið til baka með lestinni. Um 4 tíma ganga, hækkun+350m http://www.braccicorti.it/it/index3.php
Haldið snemma dags með rútu til Mílano og flogið heim um kl 15.00.
Verð á mann í tvíbýli 192.500 + 15.000 punktar
Verð án punkta 202.500
Aukagjald fyrir einbýli er 35.000
Eingöngu er hægt að nota punkta ef ferð er bókuð á netinu.
Flug
skattar
gisting
fullt fæði
ferðir
Íslensk fararstjórn