Beint í leiðarkerfi vefsins.

Framundan er glæsileg sýning í Birmingham, The Education Show.
Sýningin sem verður haldin 15. - 17. mars 2012 hentar kennurum og leikskólakennurum sérlega vel.
Þeir sem áður hafa farið á þessa sýningu sem haldin er árlega lofa hana sem frábæra alhliða sýningu.
Skráning á sýninguna er á vefslóð sem gefin er upp hér að neðan.
Skráningargögn verða send í pósti til þeirra sem skrá sig tímanlega á heimasíðu sýningarinnar.
Ferðatilhögun:
Flogið til Manchester, morgunflug miðvikudag 14. mars og þaðan verður farið með rútu til Birmingham.
Sunnudaginn 20. mars verður haldið heim til Íslands, hádegis/kvöld flug.
Gist verður í Birmingham, enskur morgunverður innifalinn.
Akstur frá hóteli að sýningarsvæði verður fimmtudaginn 15. mars kl. 09:30 og til baka á hótel kl. 16:00 og föstudaginn 16. mars kl. 09:30 frá hóteli og til baka á hótel kl. 14:00.
Laugardaginn 19. mars verður boðið upp á kokteil frá kl. 18:30 - 20:00.
Gist er á Radison BLU í Birmingham og Copthorne Tara í London.
Aukagjald fyrir einbýli kr. 43.500.-
Flugvallarskattar eru innifaldir í verði.
Ýmsar vefslóðir:
Sýningin: www.education-show.com
Heimasíða Birmingham: www.birmingham.org.uk
Myndir frá fyri sýningum: www.varmas.is
Fararstjóri er Ólafur Sigurðsson
Allar fyrirspurningr óskast sendar á netfangið olisig@varmas.is