Um VITA

Um VITA

Ferðaskrifstofan VITA var stofnuð í júní 2008 og er rekin af FERIA, sem er dótturfélag Icelandair Group. Helsta markmið ferðaskrifstofunnar er að bjóða upp á fjölbreytt úrval skipulagðra afþreyingaferða í leiguflugi frá Íslandi til útlanda með góðri þjónustu og tryggum flugkosti á samkeppnishæfu verði. Lögð er áhersla á almenna ferðaskrifstofustarfsemi, sem miðuð að Íslendingum á leið í vetrar- eða sumarleyfi vítt og breytt um heiminn. Hjá VITA er hægt að greiða fyrir leiguflug með Vildarpunktum. 15.000 Vildarpunktar gilda sem 10.000 kr. greiðsla upp í allar ferðir með leiguflugi. Viðskiptavinir VITA fá auk þess 2.500 Vildarpunkta fyrir allar keyptar ferðir í leiguflugi.

Starfsfólk VITA býr yfir mikilli reynslu og þekkingu í skipulagningu ferða um allan heim. Höfuðáhersla er lögð á að veita viðskiptavinum framúrskarandi þjónustu sem tekur mið af ólíkum þörfum hvers og eins. Starfsmenn VITA eru nú 25 talsins. Fararstjórar VITA eru fjölmargir og eiga sameiginlegt að hafa mikla þekkingu og reynslu af þeim áfangastöðum sem þeir starfa á. Framkvæmdastjóri VITA er Helgi Eysteinsson, en hann starfaði meðal annars sem sölu- og markaðsstjóri hjá Ferðaskrifstofu Íslands á árunum 2003-2006. Áður en Helgi tók við starfi framkvæmdastjóra VITA í júní 2008 starfaði hann hjá Glitni.

Starfsfólk VITA
Fararstjórar VITA

VITA
Suðurlandsbraut 2
108 Reykjavík
Sími: 570 4444

Skrifstofan er opin mánudaga til föstudaga frá kl. 09:00 - 17:00.

Bookmark and Share

Pakkar

Með skráningu í netklúbb VITA tryggir þú þér að vera með þeim fyrstu sem fá tilkynningar um nýjar ferðir, fréttir og tilboð.

Skráðu þig í netklúbb VITA
Fyrir marga er skemmtilegasta skeið ævinnar eftir sextugt. Ein helsta ástæða þess er að fáir aldurshópar hafa kost á því að ferðast jafnmikið, en ferðalög eru ein af forsendum þess að geta notið lífsins til fulls.
(+)nánar

Hópferðir

Ertu að skipuleggja hópferð? Smelltu hér

Icelandair Saga Club

Fáðu upplýsingar um hvernig þú getur notað Vildarpunktana þína.

Hrós og hugmyndir

Viltu senda okkur hrós eða ertu með einhverja hugmynd fyrir okkur?

Algengar spurningar

Fáðu svör við helstu spurningunum sem þú kannt að hafa og tengjast ferðalagi þínu með VITA.

Breyta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir



Þú getur notað Vildarpunktana hjá okkur
(+)nánar