Beint í leiðarkerfi vefsins.

Helga Möller fæddist í Reykjavík 1957. Hún lauk stúdentsprófi frá Verslunarskóla Íslands árið 1977. Helga hefur starfað sem flugfreyja hjá Icelandair síðan 1977 en er kannski best þekkt sem dægurlagasöngkona með hinum ýmsu hljómsveitum ásamt því að hafa verið ein af Icy-tríóinu sem fór fyrir Íslands hönd í Eurovision í fyrsta skiptið sem Ísland tók þátt eða árið 1986 í Bergen í Noregi.
Helga er alin upp í mikilli golffjölskyldu en móðir hennar, Elísabet Árnadóttir Möller, varð meðal annars klúbbmeistari hjá Golfklúbbi Reykjavíkur 1969, 1975 og 1976 ásamt því að vera Íslandsmeistari í golfi árið 1969. Helga hóf að leika golf 1999 og er með 14.0 í forgjöf. Hún hefur þrisvar sinnum orðið Íslandsmeistari í sínum flokki í Landsmóti 35 ára og eldri. Fyrst árið 2003 á Akranesi, en einnig árin 2004 á Hellu og 2007 á Flúðum.
Helga er einnig búin að fara holu í höggi en svo skemmtilega vildi til að það var á Islandtilla vellinum þann 14. október 2007 á 24. holu vallarins. Með henni í holli þennan dag var Valgerður Bjarnadóttir sem hafði farið holu í höggi viku áður á 13. braut. Valgerður þessi hafði einnig farið holu í höggi 9. september sama ár á Setbergsvellinum og hafi orð á því þennan dag að næst vildi hún gjarnan verða vitni af því að einhver annar afrekaði slíkt hið sama. Fjölmargir aðrir kvenkylfingar hafa einnig farið holu í höggi á Islantilla sem sannar svo ekki verður um villst að völlurinn hentar ekki síður konum en körlum.
Helga hóf störf hjá Peter Salmon á Islantilla haustið 2008 og er því að stíga sín fyrstu skref sem fararstjóri.