Ingi Rúnar Gíslason

Ingi Rúnar Gíslason

Bookmark and Share

Ingi Rúnar er fæddur 1973 á Akranesi. Hann hóf að kenna golf árið 2000 þá sem aðstoðarkennari hjá Golfklúbbnum Keili í Hafnarfirði. Árið 2003 gerðist Ingi Rúnar aðalkennari hjá Golfklúbbnum Kili í Mosfellsbæ og hefur hann kennt þar allar götur síðan. Hjá Kili hefur Ingi haft yfirumsjón með öllu unglinga- og afreksstarfi og er í dag Íþróttastjóri klúbbsins.

Margir af bestu kylfingum landsins hafa verið undir hans umsjón í GKJ, þar á meðal Kristján Þór Einarsson, Heiðar Davíð Bragason, Sigurpáll Geir Sveinsson, Magnús Lárusson og Nína Björk Geirsdóttir, svo nokkrir séu nefndir. Árið 2005 tók Ingi Rúnar við Golfskólanum ásamt Ólafi Jóhannessyni og hafa þeir yfirumsjón með honum. Ingi Rúnar hefur sigrað eitt stigamót á Toyota mótaröðinni, en það var Ostamótið sem var haldið hjá Golfklúbbnum Leyni á Akranesi árið 2002.

Hann varð fyrsti golfleiðbeinandinn til að sigra á mótaröðinni. Árið 2008 varð Ingi Rúnar í öðru sæti á Íslandsmóti 35 ára og eldri ásamt því að verða Klúbbmeistari GKJ. Árin 2004 og 2006 sigraði karlasveit Golfklúbbsins Kjalar í sveitakeppni GSÍ undir stjórn Inga Rúnars. Auk þess sem kvennasveit klúbbsins var í öðru sæti í kvennakeppninni árið 2006 og Íslandsmeistarar ári seinna. Ingi Rúnar hefur unnið hjá Peter Salmon frá árinu 2004.


Pakkar

Með skráningu í netklúbb VITA tryggir þú þér að vera með þeim fyrstu sem fá tilkynningar um nýjar ferðir, fréttir og tilboð.

Skráðu þig í netklúbb VITA
Fyrir marga er skemmtilegasta skeið ævinnar eftir sextugt. Ein helsta ástæða þess er að fáir aldurshópar hafa kost á því að ferðast jafnmikið, en ferðalög eru ein af forsendum þess að geta notið lífsins til fulls.
(+)nánar

Algengar spurningar

Fáðu svör við helstu spurningunum sem þú kannt að hafa og tengjast ferðalagi þínu með VITA.

Vildarklúbbur Icelandair

Fáðu upplýsingar um hvernig þú getur notað Vildarpunktana þína.

Gengi gjaldmiðla

Fylgstu með gengisskráningu VISA greiðslukorta.

Ferðaávísun Mastercard

Nýttu þér ferðaávísun Mastercard þegar þú verslar hjá VITA.

Breyta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir



Þú getur notað Vildarpunktana hjá okkur
(+)nánar