Þóra Björk Valsteinsdóttir

Þóra Björk Valsteinsdóttir

Bookmark and Share

Þóra Björk býr yfir gríðarlega mikilli reynslu sem fararstjóri og er óhætt að hún hafi komið víða við á þeim vettvangi. Hún hefur unnið sem fararstjóri um allan heim, m.a. Ítalíu, Slóveníu, Egyptalandi, Indlandi, Tyrklandi og Ástralíu að ógleymdu Grikklandi.

Eftir að hafa lokið stúdentsprófi á Íslandi flutti Þóra til Grikklands þar sem hún festi rætur og býr enn - eftir heil 27 ár. Þóra er gift og á tvö börn. Hún lærði grísku við háskólann í Aþenu og lauk síðar kennara- og leiðsögumannaprófi við sama skóla.

Þóra fór fljótt að vinna við fararstjórn í Grikklandi og starfaði um árabil sem fararstjóri á skemmtiferðaskipum í Miðjarðarhafinu. Í framhaldi af því hefur Þóra unnið sem fararstjóri fyrir íslenskar ferðaskrifstofur á sólarströndum gríska meginlandsins og á Krít auk þess sem að hún hefur tekið að sér fararstjórn í fjölda sérferða um allan heim.

Um þessar mundir er Þóra að láta gamlan draum rætast með því að stunda fjarnám í sagnfræði við Háskóla Íslands.


Pakkar

Með skráningu í netklúbb VITA tryggir þú þér að vera með þeim fyrstu sem fá tilkynningar um nýjar ferðir, fréttir og tilboð.

Skráðu þig í netklúbb VITA
Fyrir marga er skemmtilegasta skeið ævinnar eftir sextugt. Ein helsta ástæða þess er að fáir aldurshópar hafa kost á því að ferðast jafnmikið, en ferðalög eru ein af forsendum þess að geta notið lífsins til fulls.
(+)nánar

Algengar spurningar

Fáðu svör við helstu spurningunum sem þú kannt að hafa og tengjast ferðalagi þínu með VITA.

Vildarklúbbur Icelandair

Fáðu upplýsingar um hvernig þú getur notað Vildarpunktana þína.

Gengi gjaldmiðla

Fylgstu með gengisskráningu VISA greiðslukorta.

Ferðaávísun Mastercard

Nýttu þér ferðaávísun Mastercard þegar þú verslar hjá VITA.

Breyta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir



Þú getur notað Vildarpunktana hjá okkur
(+)nánar