Beint í leiðarkerfi vefsins.

Friðrik G. Friðriksson er einn reynslumesti fararstjóri landsins og hefur sinnt því starfi nánast samfleytt í hjartnær 30 ár. Óhætt er að segja að Friðrik hafi komið víða við en hann hefur dvalið og starfað við fararstjórn víða um heim, einna mest í löndum Mið-Evrópu. Friðrik er hafsjór af margvíslegum fróðleik um náttúru, sögu, menningu, listir, matargerð, vínsmökkun og flest annað sem viðkemur þeim ferðum sem hann stýrir hverju sinni.
Á síðustu árum hefur Friðrik verið aðalskipuleggjandi og fararstjóri í sérferðum sem ganga undir nafninu „Evrópurútan”. VITA hefur nú tekið við rekstri þeirra ferða og erum við stolt af því að hafa fengið Friðrik til liðs við okkur. Ferðir undir formerkjum Evrópurútunnar hafa notið fádæma vinsælda og má ekki síst rekja þær vinsældir til þeirrar reynslu og þekkingar sem Friðrik hefur aflað sér í gegnum árin.