Beint í leiðarkerfi vefsins.
Snorri er fæddur og uppalinn í Reykjavík. Hann lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum við Sund og útskrifaðist síðan sem tölvunarfræðingur frá Háskóla Íslands árið 1984.
Næstu 18 árin starfaði hann hjá tölvufyrirtækinu EJS á Íslandi, m.a. sem framkvæmdastjóri hugbúnarðarsviðs og tæknilegur framkvæmdastjóri EJS International. Um nokkurra ára skeið hafði hann umsjón með verkefnum fyrirtækisins í Evrópu, Asíu og Ástralíu og dvaldist af þeim sökum löngum erlendis, einkum í Hong Kong, Singapore og Sydney.
Árið 2003 flutti hann með fjölskyldu sína til Glasgow, þar sem hann tók við starfi hjá dótturfyrirtæki EJS í Skotlandi. Skipulagning ferða og ferðalög hafa löngum verið hans sérlegt áhugamál og hann hefur nú ásamt Ingu konu sinni stofnað ferðaþjónustufyrirtæki í Skotlandi (Skotganga / Scot Walks Ltd.) sem býður m.a. uppá vinsælar gönguferðir um hálönd Skotlands.
Önnur áhugasvið eru knattspyrna, golf, tónlist, saga og menning.
Snorri er kvæntur og á þrjú börn.