Sigmundur M. Andrésson

Sigmundur M. Andrésson

Bookmark and Share

Sigmundur er fæddur vestur í Dölum. Eftir nám við Verslunarskólann hóf hann störf hjá Búnaðarbanka Íslands og síðar hjá Verslunarbankanum. Starfaði um árabil hjá Seðlabankanum, lengst sem deildarstjóri aðalbókhalds. Hann lauk prófi atvinnuflugmanns og starfaði m.a. við flug með ferðamenn um Ísland og einnig sem flugkennari og svifflugkennari, en í þeirri íþrótt hefur hann verið Íslandsmeistari og sett fjölda meta.
Hann vann á árum áður fyrir Samvinnuferðir-Landsýn, en snéri sér síðan að eigin atvinnurekstri sem forstjóri Max hf.

Ferðalög hafa lengi heillað hann og hafa þau hjónin ferðast um allar álfur heimsins og eftir að hann seldi fyrirtæki sitt hefur hann stundað fararstjórn til fjarlægra staða fyrir, m.a. fyrir Heimsklúbb Ingólfs og ferðaskrifstofurnar Prima, Embla og Úrval Útsýn.

Hann hefur m.a. farið fyrir hópum til Norður-, Mið- og Suður-Ameríku, Suður-Afríku, Lesoto, Egyptalands, Indlands, Kína, Thaílands, Malasíu, Bali, Singapúr, Víetnam og Kambódíu  ásamt skemmtisiglingum með Carnival Cruises, Celebrity Cruises og Royal Caribbean International um Kyrrahafið, Panamaskurðinn, Karabíska hafið, Suður-Kínahaf og Miðjarðarhaf.

Árið 2011 fór Sigmundur á vegum VITA til Equador og Galapagos og mun endurtaka leikinn í maí 2012.

Sigmundur er kvæntur og á tvö börn.


Pakkar

Með skráningu í netklúbb VITA tryggir þú þér að vera með þeim fyrstu sem fá tilkynningar um nýjar ferðir, fréttir og tilboð.

Skráðu þig í netklúbb VITA
Fyrir marga er skemmtilegasta skeið ævinnar eftir sextugt. Ein helsta ástæða þess er að fáir aldurshópar hafa kost á því að ferðast jafnmikið, en ferðalög eru ein af forsendum þess að geta notið lífsins til fulls.
(+)nánar

Algengar spurningar

Fáðu svör við helstu spurningunum sem þú kannt að hafa og tengjast ferðalagi þínu með VITA.

Vildarklúbbur Icelandair

Fáðu upplýsingar um hvernig þú getur notað Vildarpunktana þína.

Gengi gjaldmiðla

Fylgstu með gengisskráningu VISA greiðslukorta.

Ferðaávísun Mastercard

Nýttu þér ferðaávísun Mastercard þegar þú verslar hjá VITA.

Breyta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir



Þú getur notað Vildarpunktana hjá okkur
(+)nánar