
Hjónin Snorri og Inga hafa verið búsett í Skotlandi undanfarin 5 ár. Þangað fluttu þau vegna vinnu Snorra, en hann starfar sem framkvæmdastjóri hugbúnaðarfyrirtækis í Glasgow.
Á undanförnum árum hafa þau skipulagt vinsælar gönguferðir um Skosku hálöndin og farið með hópum vítt og breitt um Skotland. Inga starfari líka um árabil sem fararstjóri með íslenska hópa í Edinborg og þekkir hvern krók og kima borgarinnar, ekki síst verslanirnar, sem heilla marga í heimsókn til Edinborgar.
Snorri og Inga hafa heillast af náttúrufegurð og merkilegri sögu Skotlands og hafa á undanförnum árum leitt fjölmarga hópa vítt og breitt um landið, bæði í göngu- og rútuferðum. Eiga margir góðar minningar úr skemmtilegri feð með þeim hjónum.