Viðskiptaferðir fyrir fyrirtæki og einstaklinga | Viðskiptalíf VITA

Viðskiptalíf

Ferðaskrifstofan VITA er öflugur valkostur þegar kemur að skipulagningu viðskipta - og einstaklingsferða. Starfsmenn VITA búa yfir margra ára reynslu í skipulagningu utanlandsferða og að þjónusta viðskiptavini. Tíminn er dýrmætur og því lykilatriði að nýta hann vel.

Hjá VITA færðu hagstæð fargjöld og hagkvæma ferðaáætlun, hvort sem erindið er á fund, ráðstefnu, vörusýningu eða eitthvað annað. VITA er með samkeppnishæf verð við flugfélög og hótel um allan heim.

VITA þjónustusamningur veitir sérhæfa og persónulega þjónustu sem meðal annars felur í sér:
•  Fyrirtækjasamning við Icelandair sem veitir þínu fyrirtæki afslátt og sérkjör*.
•  Hagstæðan fyrirtækjasamning við Iceland Express.
•  Samning við öll helstu flugfélög heims um hagstæð fargjöld og tengiflug.
•  Neyðarsíma allan sólarhringinn fyrir samningsbundin fyrirtæki.
•  Hagstæða hótel samninga.
•  Hagstæð verð fyrir bílaleigubíl eða annan akstur á hverjum stað.
•  Vildarnúmer fyrir hvern viðskiptavin, svo hægt sé að skrá óskir og sérþarfir viðskiptavina.

* Við undirritun fyrirtækjasamnings njóta viðskiptavinir strax góðs af sérstöku afsláttarfyrirkomulagi sem nær til flughluta Icelandair. Afslátturinn tekur mið af heildarfargjaldanotkun fyrirtækisins og reiknast á þriggja mánaða tímabili. Ekki er gerð krafa um lágmarksupphæð og afslátturinn reiknast strax frá fyrsta flugi.


Rekstur VITA viðskiptalífs er byggður á  traustum grunni Iceland Travel sem rekur VITA. Iceland Travel og VITA eru samstarfsaðilar Carlson Wagonlit, sem er eitt stærsta ferðaþjónustufyrirtæki heims.

Frekari upplýsingar veita starfsmenn VITA viðskiptalífs, vinsamlegast sendið tölvupóst á netfangið vidskipti(hja)vita.is , í síma 570-4444 eða á skrifstofu okkar að Skútuvogi 13a.

 


Pakkar

Með skráningu í netklúbb VITA tryggir þú þér að vera með þeim fyrstu sem fá tilkynningar um nýjar ferðir, fréttir og tilboð.

Skráðu þig í netklúbb VITA
Fyrir marga er skemmtilegasta skeið ævinnar eftir sextugt. Ein helsta ástæða þess er að fáir aldurshópar hafa kost á því að ferðast jafnmikið, en ferðalög eru ein af forsendum þess að geta notið lífsins til fulls.
(+)nánar

Algengar spurningar

Fáðu svör við helstu spurningunum sem þú kannt að hafa og tengjast ferðalagi þínu með VITA.

Vildarklúbbur Icelandair

Fáðu upplýsingar um hvernig þú getur notað Vildarpunktana þína.

Gengi gjaldmiðla

Fylgstu með gengisskráningu VISA greiðslukorta.

Ferðaávísun Mastercard

Nýttu þér ferðaávísun Mastercard þegar þú verslar hjá VITA.

Breyta um leturstærð


Leit


Flýtileiðir




Þú getur notað Vildarpunktana hjá okkur
(+)nánar

Inspired by Iceland