fbpx Hotel der Waldhof, Zell am See | Vita

Hotel der Waldhof, Zell am See
4 stars

Vefsíða hótels

Fjögurra stjörnu fjölskyldurekið hótel staðsett í skíðabænum Zell am See og í stutt frá er skíðakláfurinn Schmittenhöhe.

Á hótelinu er góð aðstaða eins og móttaka opin allan sólarhinginn, bar, líkamsræktaraðstaða, barnaleikherbergi og einstaklega flott heilsulind þar sem m.a. má finna innisundlaug, sauna og hvíldarherbergi. Á hótelinu er í boði hálft fæði (morgunmatur og kvöldmatur) og er matur reiddur fram af hlaðborði  þar sem er lögð er áhersla á hágæða hráefni.

Öll herbergi eru búin nútímaþægindum eins og sjónvarpi, minibar, svölum og fullbúnu baðherbergi með hárþurrku.

Miðbær Zell am See er í um 500 metra fjarlægð. Þar má finna veitingastaði, aprez-ski bari, verslanir og fleira.Skíðabrekkurnar eru svo allt um kring. Fyrir gönguskíðafólk eru 200 kílómetrar af gönguskíðabrautum. Hægt er kaupa skíðapassa „ski alpen card“ sem gefur aðgang að meira en 400 km. af  brekkum og  um 120 skíðalyftum. Rétt hjá má svo finna skíðabæinn Kaprun  en þar er jökullinn Kitzsteinhorn og er þar hæsti tindur 3200 metra hár. Á fáum stöðum í Austurríki getur þú treyst því betur að nægur snjór þeki skíðabrekkurnar í vetrarfríinu þínu. Það skíðasvæði er einnig innifalið í skíðapassanum.  

Vert er að taka fram að það er ekki fararstjóri á svæðinu en hægt er að hafa samband við Icelandair VITA ef eitthvað kemur upp á. Ekki eru í boði akstur til og frá flugvelli en hægt er að sérpanta það gegn aukagjaldi. 

Ferðamannaskatturinn í Austurríki er ekki innifalinn í verði ferðarinnar. Hann greiðist á hóteli við brottför. Sjá nánar undir hagnýtar upplýsingar.

Fjarlægðir

  • Frá flugvelli: 100 km
  • Veitingastaðir: Í miðbænum
  • Frá miðbæ: 500 metrar

Aðstaða

  • Þráðlaust net
  • Herbergi
  • Gestamóttaka
  • Barnaleiksvæði
  • Bar
  • Upphituð skíðageymsla
  • Veitingastaður
  • Heilsulind
  • Sundlaug
  • Gufubað
  • Líkamsrækt

Vistarverur

  • Hárþurrka
  • Minibar
  • Verönd/svalir
  • Sjónvarp
  • Öryggishólf

Fæði

  • Hálft fæði

Við notum vefkökur (e.cookies) t.d. til að greina umferð um vefinn og til að bæta upplifun notanda á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú vefkökuskilmála VITA

Nánari upplýsingar um vefkökunotkun