fbpx Hotel Lebzelter, Zell am See | Vita

Hotel Lebzelter, Zell am See
3 stars

Vefsíða hótels

Þriggja stjörnu hótel staðsett á góðum stað í hjarta Zell am See. Í göngufær frá veitingastöðum verslunum.

Á hótelinu er móttaka og setustofa, bar „apres ski“ , veitingastaður og gufubað. Morgunmatur er innifalinn í verðum og er hann reiddur fram af hlaðborði.

Öll herbergin eru fallega innréttuð og má þar finna öll helstu þægindi eins og sjónvarp, síma, öryggishólf, hárþurrku og fullbúið baðherbergi. Sum eru með svalir en þaðan er fallegt útsýni yfir miðbæinn í Zell am See.

Zell am See er yndislegur bær með skíðasbrekkurnar allt um kring. Bærinn sjálfur er mjög skemmtilegur og iðar af mannlífi, þar má finna veitingastaði, aprez-skí bari, verslanir og fleira. Fyrir gönguskíðafólk eru 200 kílómetrar af gönguskíðabrautum. Hægt er kaupa skíðapassa „ski alpen card“ sem gefur aðgang að meira en 400 km. af  brekkum og  um 120 skíðalyftum. Rétt hjá má svo finna skíðabæinn Kaprun  en þar er jökullinn Kitzsteinhorn og er þar hæsti tindur 3200 metra hár. Á fáum stöðum í Austurríki getur þú treyst því betur að nægur snjór þeki skíðabrekkurnar í vetrarfríinu þínu.  Það skíðasvæði er einnig innifalið í skíðapassanum.  

Vert er að taka fram að það er ekki fararstjóri á svæðinu en hægt er að hafa samband við Icelandair VITA ef eitthvað kemur upp á. Ekki eru í boði akstur til og frá flugvelli en hægt er að sérpanta það gegn aukagjaldi. 

Ferðamannaskatturinn í Austurríki er ekki innifalinn í verði ferðarinnar. Hann greiðist á hóteli við brottför. Sjá nánar undir hagnýtar upplýsingar.

Fjarlægðir

  • Frá flugvelli: Salzburg 100 km.
  • Frá flugvelli: Innsbruck 150 km
  • Frá flugvelli: Munchen 205 km.
  • Frá miðbæ: Í miðbænum

Við notum vefkökur (e.cookies) t.d. til að greina umferð um vefinn og til að bæta upplifun notanda á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú vefkökuskilmála VITA

Nánari upplýsingar um vefkökunotkun