fbpx Marta Boutique hotel, Zell am See | Vita

Martha boutique hotel, Zell am See
3 stars

Vefsíða hótels

Gott þriggja stjörnu hótel staðsett í skíðabænum Zell am See sem margir þekkja. Skíðarúta stoppar rétt hjá.

Á hótelinu er ágætisaðstaða svo sem móttaka, sauna, bar og veitingastaður.  Innifalið er morgunverður sem reiddur er fram af hlaðborði.

Öll herbergin eru snyrtilega búin með helstu þægindum og fullbúnu baðherbergi.

Zell am See er yndislegur bær með skíðasbrekkurnar allt um kring. Bærinn sjálfur er mjög skemmtilegur og iðar af mannlífi, þar má finna veitingastaði, Aprez-skí bari, verslanir og fleira. Fyrir gönguskíðafólk eru 200 kílómetrar af gönguskíðabrautum. Hægt er kaupa skíðapassa „ski alpen card“ sem gefur aðgang að meira en 400 km. af  brekkum og  um 120 skíðalyftum. Rétt hjá má svo finna skíðabæinn Kaprun  en þar er jökullinn Kitzsteinhorn og er þar hæsti tindur 3200 metra hár. Á fáum stöðum í Austurríki getur þú treyst því betur að nægur snjór þeki skíðabrekkurnar í vetrarfríinu þínu.  Kaprun skíðasvæðið er einnig innifalið í skíðapassanum "ski alpen card".  

Sjá nánar um Zell am See – Kaprun

Vert er að taka fram að það er ekki fararstjóri á svæðinu en hægt er að hafa samband við Icelandair VITA ef eitthvað kemur upp á. Ekki eru í boði akstur til og frá flugvelli en hægt er að sérpanta það gegn aukagjaldi. 

Ferðamannaskatturinn í Austurríki er ekki innifalinn í verði ferðarinnar. Hann greiðist á hóteli við brottför. Sjá nánar undir hagnýtar upplýsingar.

Fjarlægðir

  • Frá flugvelli: Salzburg flugvöllur - 100 km
  • Frá flugvelli: Innsbruck flugvöllur - 150 km
  • Frá flugvelli: Munchen flugvöllur - 206 km

Aðstaða

  • Morgunmatur
  • Herbergi
  • Gestamóttaka
  • Gufubað
  • Þráðlaust net

Vistarverur

  • Sjónvarp
  • Hárþurrka
  • Öryggishólf

Við notum vefkökur (e.cookies) t.d. til að greina umferð um vefinn og til að bæta upplifun notanda á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú vefkökuskilmála VITA

Nánari upplýsingar um vefkökunotkun